Hækkun sekta ýtir á ökumenn

Mikið var að gera á verkstæðum í gær við hjólbarðaskipti, …
Mikið var að gera á verkstæðum í gær við hjólbarðaskipti, enda komið sumar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mikið annríki hefur verið á dekkjaverkstæðum síðustu daga enda er orðið tímabært fyrir bílstjóra að láta skipta yfir á sumardekkin.

Lögum samkvæmt eiga allir bílar að vera komnir af vetrardekkjunum 15. apríl en jafnan er veittur nokkurra daga frestur til að skipta yfir. Það getur til dæmis átt við úti á landi, en þar getur verið allra veðra von langt fram á vorið – og stundum hreinlega vetrarfæri eins og verið hefur austur á landi síðustu daga.

Hinn 1. maí tekur gildi ný reglugerð og samkvæmt henni hækka sektir fyrir umferðarlagabrot verulega. Í dag þurfa ökumenn bíla sem eru á nagladekkjum að sumri að greiða 5.000 krónur í sekt fyrir hvern hjólbarða, en frá mánaðamótunum verður upphæð þessi 20.000 krónur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert