230 þúsund tonna skip til Íslands?

Stærsta farþegaskip heims, Symphony of the Seas, kveður skipasmíðastöðina í …
Stærsta farþegaskip heims, Symphony of the Seas, kveður skipasmíðastöðina í Saint-Nazaire í Frakklandi. AFP

Faxaflóahöfnum hefur borist fyrirspurn um það hvort fyrirtækið geti tekið á móti 230.000 brúttótonna skemmtiferðaskipi.

Um er að ræða sannkallað risaskip því lengdin er 400 metrar eða eins og fjórir knattspyrnuvellir. Til samanburðar eru stærstu skip íslenska flotans, Dettifoss og Goðafoss, 14.664 brúttótonn.

„Ég svaraði því til að mögulegt væri að taka skip af þessari stærð að bryggju en því yrði að snúa utan við Skarfagarð og bakka inn eða út því snúningspláss utan við bryggjuna sjálfa er ekki nægjanlegt. Allt væri þetta að sjálfsögðu háð veðri, eins og alltaf með skip almennt,“ segir Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumaður hjá Faxaflóahöfnum. Skarfabakki í Sundahöfn er 650 metra langur.

Fyrirspurnin barst frá umboðsmanni skipa án nafns. Mögulegt er að skipið sé á teikniborðinu eða þá í smíðum, en engar frekari upplýsingar fylgdu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert