Ákærður fyrir að slá mann með kaffibolla

Árásin átti sér stað í sumarbústað á Suðurlandi.
Árásin átti sér stað í sumarbústað á Suðurlandi. AFP

Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður af embætti héraðssaksóknara fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa í sumarbústað í ágúst árið 2015 slegið annan mann með kaffibolla og veitt honum högg í andlitið.

Í ákæru málsins segir að maðurinn sem varð fyrir árásinni hafi hlotið 4 sentimetra langan skurð á vinstra eyra og önnur eymsli.

Málið var þingfest í síðustu viku í Héraðsdómi Reykjaness.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert