Ellefu konur frá jafn mörgum löndum náðu þeim áfanga í fyrradag að ganga síðustu breiddargráðuna að Norðurpólnum.
Útivistarkonan Fellicity Aston er leiðangursstjóri í hópnum, en hún er búsett á Íslandi og á íslenskan eiginmann. Hún átti frumkvæðið að verkefninu og er markmið þess að skapa samtal á milli Mið-Austurlanda og Evrópu í menningarlegum skilningi.
Aston sagði í samtali við mbl.is fyrir leiðangurinn að markmið hans væri einnig að fá innsýn í það af hverju misskilningur á til að myndast milli þessara mismunandi menningarhópa, það er milli kvenna á Vesturlöndum og mið-Austurlöndum. Hún vildi því sameina konur frá ólíkum heimhornum og menningum í leiðangur þar sem þá gefst þeim tækifæri að kynnast á mjög stuttum tíma og vonandi að veita hverri annarri innblástur í þeim tilgangi að ná markmiðum sínum, hver sem þau eru.
Konurnar í hópnum koma meðal annars frá Katar, Slóveníu, Kýpur, Óman og Svíþjóð og hafa þær ólíkan bakgrunn. Ein er blaðakona, önnur vísindakona, nokkrar eru útivistarkonur, ein heimavinnandi húsmóðir auk viðskiptakvenna svo eitthvað sé nefnt en þær eru á aldrinum 26-47 ára.
Áætlað var að ferðin myndi taka um 10 daga en þær luku ferðinni á skemmri tíma þegar þeim tókst að skíða 82 kílómetra á sjö dögum.
Leiðangurinn hefur vakið athygli víða og hér má sjá myndskeið frá BBC þar sem hópurinn var tekinn tali rétt áður en þær lögðu í hann.