Hálkublettir á nokkrum fjallvegum

Vegir eru víðast hvar greiðfærir á láglendi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni, en hálkublettir eru á nokkrum fjallvegum.

Hálka er á Vatnsskarði eystra, krapi er á kafla á norðanverðu Snæfellsnesi og einnig á Þröskuldum. Þæfingsfærð er yfir í Mjóafjörð.

Sumarvegir eru flestir ófærir og sums staðar akstursbann vegna hættu á skemmdum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert