Hæstiréttur hefur vísað máli pars, sem var svikið um 1,4 milljónir króna á Tenerife árið 2015 og sakar Arion banka og Valitor um alvarlega vanrækslu, aftur í hérað.
Samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sem var kveðinn upp í apríl í fyrra ber Arion banka hf. að fella niður kreditkortafærslur pars sem lenti í svikum við kaup á spjaldtölvu á Tenerife árið 2015. Greiðslurnar sem um ræðir námu um 1,4 milljónum króna. Bankanum var einnig gert að greiða parinu 1,1 milljón króna í málskostnað.
Þorvaldur Ingi Jónsson ákvað að kaupa spjaldtölvu í ákveðinni verslun þegar hann var staddur á Tenerife árið 2015 og greiddi hann fyrir tölvuna með peningum. Honum var ekki afhent tölvan en sagt að það þyrfti að uppfæra hana. Hann mætti svo síðar í búðina til að fá tölvuna en var þá ráðlagt að greiða fremur kaupverðið, 365 evrur, með VISA-greiðslukorti til að fá tveggja ára ábyrgðartryggingu. Maðurinn fékk peningana sem hann hafði greitt fyrir tölvuna endurgreidda og greiddi sömu fjárhæð með kreditkorti sínu.
Parinu var svo tjáð að til viðbótar þyrfti að senda beiðni fyrir ábyrgð hjá VISA. Stóð parið í þeirri trú að þær færslur ættu að vera án fjárhæðar. Maðurinn staðfesti svo fimm sinnum færslur með PIN-númeri sínu í tveimur posum.
Í úrskurði Hæstaréttar sem kveðinn var upp í dag segir að málsástæðu þess efnis, að parið hafi ekki fengið afhenta neina vöru eða þjónustu, sé hvergi að finna í skriflegum málatilbúnaði parsins í héraði og við munnlegan málflutning fyrir Hæstarétti kom fram að hana hafi ekki borið á góma við flutning málsins í héraði, enda hafa stefndu þvert á móti haldið því fram að þau hafi ekki verið að greiða fyrir vöru eða þjónustu með notkun kortanna heldur einungis að tryggja sér ábyrgð án endurgjalds á tölvunni sem maðurinn hafði keypt af versluninni.
Þar sem dómari má ekki byggja niðurstöðu sína á málsástæðum sem hefðu mátt koma fram við meðferð máls en gerðu það ekki kemst Hæstiréttur ekki hjá því að ómerkja áfrýjaða dóminn og vísa málinu aftur í hérað. Málsaðilar bera hver sinn kostnað af málinu fyrir Hæstarétti.