Karlmaður hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir að brjótast inn á heimili konu að kvöldlagi fyrir tveimur árum síðan, afklæðast fyrir framan hana, hóta henni kynferðislegu ofbeldi og hafa af henni fimm þúsund krónur.
Þetta kemur fram á fréttavef Ríkisútvarpsins en konan krefur manninn um 800 þúsund krónur í miskabætur og fimm þúsund krónur í skaðabætur. Maðurinn er sagður í ákærunni hafa káfað á sjálfum sér eftir að hann braust inn á heimili konunnar og ítrekað reynt að fá hana til þess að snerta hann með því að toga í hönd hennar.