Stjórn Læknafélagsins styður ljósmæður

Stjórn Læknafélags Íslands telur að neyðarástsand muni skapast á Landspítalanum …
Stjórn Læknafélags Íslands telur að neyðarástsand muni skapast á Landspítalanum vegna fjölda uppsagna ljósmæðra verði ekki samið við þær hið fyrsta. mbl.is/Ómar Óskarsson

Stjórn Læknafélags Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við Ljósmæðrafélag íslands í yfirstandandi kjaraviðræðum.“ Þetta kemur fram á vefsíðu Læknafélags Íslands.

Stjórn félagsins samþykkti fyrr í vikunni ályktun til stuðnings kjarabaráttu ljósmæðra.

Þar segir að stjórnin lýsi þungum áhyggjum af því neyðarástandi sem muni skapast á Landspítalanum vegna fjölda uppsagna ljósmæðra verði ekki samið við þær hið fyrsta.

„Þjónusta við konur í barneignarferli hefur verið mjög góð á Íslandi enda er árangurinn með því besta sem gerist í heiminum. Það hlýtur að vera keppikefli stjórnvalda að draga ekki úr gæðum þjónustu við barnshafandi konur og fjölskyldur þeirra,“ segir í yfirlýsingunni.

„Stjórn LÍ skorar því á deiluaðila að ganga tafarlaust til samninga þar sem menntun og ábyrgð ljósmæðra er metin með sanngjörnum hætti til launa.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert