Fundurinn með Braga verður opinn

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu. Ljósmynd/Aðsend

Fundur velferðarnefndar Alþingis með Braga Guðbrandssyni, forstjóra Barnaverndarstofu, næstkomandi miðvikudag verður opinn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá nefndarsviði Alþingis.

Fundurinn hefst klukkan 10 og stendur yfir í klukkustund.

Í morgun svaraði Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, spurningum velferðarnefndar vegna barnaverndarmála. Sá fundur var einnig opinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert