Gangi áform Icelandair Group, Primera Air og WOW air eftir gætu nærri 150 farþegaþotur verið í rekstri félaganna innan fárra ára. Við það bætist m.a. að Air Atlanta Icelandic hefur nú 14 þotur og Bluebird Cargo 8 þotur. Bæði félög eru í vexti.
Hrafn Þorgeirsson, forstjóri Primera Air, segir tækifærin mörg. „Ef áætlanir okkar ganga eftir sjáum við auðveldlega fyrir okkur að vera með 30-40 þotur í flotanum eftir þrjú til fjögur ár... Það á sér stað ákveðin bylting. Nýju þoturnar gera lággjaldaflugfélögunum mögulegt að fara inn á þessar lengri leiðir sem hafa ekki verið hagkvæmar hingað til,“ segir Hrafn og vísar m.a. til flugs frá Austur-Evrópu til Asíu.
Í umfjöllun um aukin umsvif flugfélaganna í Morgunblaðinu í dag sér Skúli Mogensen, stofnandi WOW air, fyrir sér jafnvel tvöföldun á flota félagsins á næstu árum. Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála hjá Icelandair Group, segir „líklegt að ef olíuverð helst óbreytt, eða hækkar frá því sem nú er, muni fargjöld hækka á síðari hluta ársins“.