Smokkasjálfsalar í alla framhaldsskóla

Morgunblaðið/Eggert

Allir framhaldsskólar landsins fá í vikunni smokkasjálfsala að gjöf og var sá fyrsti afhentur í Menntskólanum á Laugarvatni í gær.

Verkefnið er samstarfsverkefni Ástráðs (kynfræðslufélag læknanema), embættis landlæknis, Háskóla Íslands (fræðasvið um kynheilbrigði) og Kynís (kynfræðingafélag Íslands) með styrk úr Lýðheilsusjóði.

Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir afhenti formanni Nemendafélagsins Mímis Sigríði Helgu Steingrímsdóttur í Menntaskólanum að Laugarvatni fyrsta smokkasjálfsalann í gær við afhendingu Gulleplisins 2018 en skólinn hlýtur þá viðurkenningu í ár fyrir vel unnið starf er kemur að jafnrétti og kynheilbrigði.

„Tilgangur verkefnisins er að stuðla að kynheilbrigði ungs fólks með því að auka aðgengi þeirra að smokkum. En eins og kom fram í ræðu Þórólfs þá hefur embættið verið að sjá talsverða aukningu í kynsjúkdómum á Íslandi sem og öðrum vestrænum löndum. Því er mikilvægt fyrir opinbera aðila að taka höndum saman og stoppa þessa þróun. Það að gera smokka aðgengilegri fyrir ungt fólk er einn þáttur í því eins og kom fram í tillögum starfshóps sem settur var á laggirnar til þess að stemma stigu við útbreiðslu kynsjúkdóma hér á landi,“ segir í tilkynningu.

Sjá nánar hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert