Heklureitur er langt kominn í skipulaginu

Hér er horft frá Laugavegi 176 og vestur eftir að …
Hér er horft frá Laugavegi 176 og vestur eftir að Hlemmi. Byggja á hundruð íbúða við götuna. Teikning/Yrki arkitektar

Reiknað er með að deiliskipulag Laugavegar 168-176 í Reykjavík verði samþykkt á næstu vikum. Þar er svonefndur Heklureitur. Reiturinn er nefndur eftir höfuðstöðvum bílaumboðsins Heklu við Laugaveg. Samhliða uppbyggingunni mun Hekla byggja upp nýjar höfuðstöðvar í Suður-Mjódd í Reykjavík.

Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu, vonast til að skipulagsvinna verði endanlega afgreidd í sumarlok.

„Síðan verður hugað að því að koma svæðinu í uppbyggingu. Við gerum ráð fyrir að framkvæmdir hefjist jafnvel innan tveggja til þriggja ára,“ segir Friðbert.

Hann telur að verkefninu verði áfangaskipt. Gert sé ráð fyrir niðurrifi allra bygginga á svæðinu.

„Eðli verksins samkvæmt er þó mikilvægt að svæðið byggist hratt upp svo það verði ekki mikið ónæði fyrir nýja íbúa og nærumhverfi,“

segir Friðbert um verkefnið.

Hekla er 85 ára í ár og hefur verið með aðsetur á Laugavegi síðan 1962. Friðbert segir að með flutningnum leitist fyrirtækið m.a. við að bæta aðstöðuna og þannig bæta þjónustuna við viðskiptavini.

Hugmyndir eru um eina akrein í hvora átt við Nóatún …
Hugmyndir eru um eina akrein í hvora átt við Nóatún og bílastæði. Teikning/Yrki arkitektar

Fimm fjölbýlishús og hótel

Yrki arkitektar unnu samkeppni borgarinnar um hönnun rammaskipulags svæðisins. Það afmarkast af Laugavegi, Bolholti, Skipholti, Brautarholti og Nóatúni. Þeir hafa nú unnið deiliskipulag á hluta þess.

Ásdís Helga Ágústsdóttir, arkitekt hjá Yrki arkitektum, segir svæðinu skipt í þrjá reiti, A, B og C. Heklureitur sé hluti af deiliskipulagi fyrir Laugaveg 168-176, eða A-reit. Hekla og Varmi séu eigendur lóða að frátöldum Laugavegi 176 sem sé í eigu Reita. Það er gamla Sjónvarpshúsið og eru áform um að breyta því í hótel. Önnur arkitektastofa hannar hótelið. Á Laugavegi 168-174 eru áform um að byggja fjórar blokkir með um 400 íbúðum, atvinnustarfsemi og gististarfsemi. Ásdís Helga segir áskorun að teikna íbúðarhús sem snúa í norður. Til að tryggja góða birtu séu húsin látin stallast frá norðri til suðurs. Nokkur hæðarmunur er á svæðinu. Stallarnir skulu vera gróðurvænt útisvæði. Á jarðhæð við Laugaveg á að hafa góða lofthæð til að tryggja bjartar og opnar hæðir. Þar verður rými fyrir verslun og þjónustu.

Svona leit Laugavegur 170 út á fyrri stigum hönnunar.
Svona leit Laugavegur 170 út á fyrri stigum hönnunar. mbl.is/Helgi Bjarnason

Gönguás liggi í gegnum svæðið

Ásdís Helga segir borgina hafa fylgt eftir markmiðum rammaskipulags fyrir svæðið í heild. Þá meðal annars varðandi gæði byggðarinnar. Hugað sé að tengingum milli íbúðabyggðar. Þá til dæmis með gönguás frá Brautarholti og í gegnum rammaskipulagsreitinn. Á sama hátt sé hugað að tengingum frá Laugavegi og upp hverfið að Brautarholti og Skipholti. Hún segir um fjórðung íbúða á Heklureitnum verða miðaðan við þarfir þeirra sem ekki vilja eða geta lagt mikið fé í eigið húsnæði.

Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs, segir það fagnaðarefni hversu langt vinnan við deiliskipulagið er komin. Það bíði nú afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs og svo borgarráðs. Hjálmar kveðst eiga von á að umhverfis- og skipulagsráð samþykki skipulagið.

Hann segir hluta fyrirhugaðrar borgarlínu munu liggja meðfram Heklureitnum á Suðurlandsbraut. Til að rýma fyrir borgarlínunni verði göturými fyrir bíla fórnað.

Hjálmar segir að með uppbyggingunni fái svæðið meiri miðborgarbrag.

„Þetta er lykilreitur nálægt Hlemmi í jaðri miðborgarsvæðisins. Hann liggur frábærlega vel við almenningssamgöngum. Þetta passar vel við borgarlínuáformin. Það er gert ráð fyrir að borgarlínan fari þarna framhjá og svo vestur Suðurlandsbraut og yfir Elliðaárnar,“ segir Hjálmar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert