Launalækkunin of sein

Tónlistarhúsið Harpan við Reykjavíkurhöfn.
Tónlistarhúsið Harpan við Reykjavíkurhöfn.

Einn þeirra 22 þjónustufulltrúa sem hafa sagt starfi sínu lausu í Hörpu vegna óánægju með kjör segir það hafa verið of seint í rassinn gripið hjá forstjóra Hörpu að ætla að lækka laun sín. Fimm þjónustufulltrúar til viðbótar eiga eftir að gera upp hug sinn um hvort þeir haldi áfram eða ekki.

Þá segir þjónustufulltrúinn einnig að ummæli Þórðar Sverrissonar, stjórnarformanns Hörpu, hafi orðið til þess að sá möguleiki að draga uppsagnirnar til baka hafi endanlega fallið um sjálfan sig. „Hann gerir sér ekki neina grein fyrir vandanum og hversu dýrt það er að við séum öll að hætta og öll reynslan og þekkingin þurrkist út,“ segir þjónustufulltrúinn, sem vill ekki láta nafns síns getið.

Hann segir að það fyrsta sem fólk læri í stjórnun sé hversu mikilvægt sé að halda mannauðnum góðum vegna þess að það sé mjög dýrt að reka og ráða starfsfólk. Ábyrgðarlaust sé að fara þessa leið sem hefur verið farin. Þjónustufulltrúinn bætir við að allir sjái í gegnum ummæli Þórðar sem kenndi blaðamönnum um og sagði að „falskar fréttir“ hefðu verið sagðar af því að forstjóri Hörpu hefði hækkað í launum um 20%. „Hann er eiginlega að grafa sína eigin holu með því að koma svona fram. Gamli forstjórinn var með X-laun og Svanhildur með Y-laun og þau voru hærri. Þetta er bara svart á hvítu.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert