Tulipopparar tala tungum

Tungumálin eru Bubble, Gloomy, Maddý, Fred, mömmu Skully og Herra …
Tungumálin eru Bubble, Gloomy, Maddý, Fred, mömmu Skully og Herra Tré ekki til trafala. Ljósmynd/Tulipop

Teiknimyndirnar um Tulipopparana hugljúfu verða frumsýndar með íslensku tali á RÚV í kvöld. Fram til þessa hafa þeir aðeins tjáð sig á ensku á Tulipop-rásinni sinni á YouTube, en nú hafa þeir lært íslensku og eru komnir langleiðina með að læra þýsku og spænsku. Og hver veit nema Tulipoppararnir eigi frekari frama í vændum, t.d. í 52 þátta sjónvarpsþáttaröð er fram líða stundir?

Á eyjunni Tulipop býr sveppastrákurinn og náttúruunnandinn Bubble, systir hans Gloomy, sem er hugrökk og ævintýragjörn uppfinningamanneskja, furðuverurnar Fredd, Miss Maddý, herra Tré og mamma Skully og fleiri geðþekkar verur sem allar búa yfir mannlegum kostum og göllum. „Tulipop er sannkölluð ævintýraeyja með skrautlegum persónum þar sem meginskilaboðin eru að enginn sé fullkominn og fjölbreytileikinn frábær,“ segir Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri hönnunarfyrirtækisins Tulipop, sem hún og Signý Kolbeinsdóttir, teiknari og vöruhönnuður, stofnuðu árið 2010.

Tulipop snýst um Tulipoppara; karaktera sem Signý hefur gefið líf í gegnum myndheim, sem og alls konar tilheyrandi varning, mjúkdýr, töskur og fleira. Þær stöllur hófu fljótlega landvinninga og opnuðu skrifstofu í New York þar sem Signý hefur starfað í tvö ár á meðan Helga heldur um stjórnartaumana hér heima.

Síðan hefur margt drifið á daga Tulipopparanna. „Nýjasta nýtt er að í kvöld tala þeir í fyrsta skipti opinberlega íslensku,“ segir Helga stolt af sínum og skírskotar til fyrsta þáttar í tíu þátta teiknimyndaseríu, sem frumsýndur verður á RÚV í kvöld kl. 18.47. Hver þáttur er tvær og hálf mínúta.

Skemmtilegt og lærdómsríkt

„Stjörnulið íslenskra leikara ljær Tulipoppurunum rödd sína. Ólafur Darri Ólafsson talar fyrir Fred, eina aðalpersónu þáttanna, eins og hann gerði reyndar líka í ensku útgáfunni. Meðal annarra leikara eru Salka Sól, Ólafía Hrönn og Laddi. Tónlistin í þáttunum er eftir Herdísi Stefánsdóttur og James Newberry, en Úlfur Eldjárn samdi upphafsstefið.“

Fyrir sléttu ári fengu þær Signý og Helga handritshöfundinn Tobi Wilson til að vinna með sér handritið, en hann hefur skapað sér nafn í heimi teiknimynda, sem einn helsti handritshöfundur þáttaraðarinnar The Amazing World of Gumball. „Við framleiðum þættina í samstarfi við bandaríska fyrirtækið Wildbrain, sem er leiðandi í framleiðslu afþreyingarefnis fyrir vefmiðla. Það hefur verið ótrúlega skemmtilegt og lærdómsríkt ferli að búa til okkar fyrstu teiknimyndir byggðar á Tulipop-ævintýraheiminum. Upphaflega var hugmyndin að sýna fyrstu seríuna einungis á rás Tulipop á YouTube, en viðbrögðin voru svo góð að við ákváðum í samstarfi við RÚV að talsetja seríuna á íslensku,“ segir Helga.

Ensku þættirnir fóru í loftið á rás Tulipopparanna í október, áhorfið er komið í 1,5 milljónir og eru helstu aðdáendur Tulipopparanna í Bandaríkjunum og Kanada. „Ný tíu þátta sería er komin í framleiðslu og stefnt að því að fyrsti þátturinn fari í loftið síðsumars,“ segir Helga og bætir við að einnig sé í bígerð að talsetja þá þætti á íslensku.

Yndislegir en meingallaðir

Af öðru á döfinni hjá Tulipop nefnir hún að viðræður standi yfir við stórt alþjóðlegt fyrirtæki um að framleiða 52 þátta seríu þar sem hver þáttur yrði 11 mínútur. „Klassísk sjónvarpssería af því taginu er gríðarlega stórt verkefni sem tekur minnst tvö ár og er rosalega spennandi. Næstu skref er að gera fleiri stutta og skemmtilega þætti, sem væntanlega verða sýndir á RÚV í haust. Núna erum við að hefja talsetningar á þýsku og spænsku, sem verða tilbúnar í sumar. Fyrr en varir verða Tulipoppararnir farnir að tala mörgum tungum,“ segir Helga brosandi og fer að lokum fögrum orðum um mannkosti þessara litlu, krúttlegu ævintýravera:

„Tulipoppararnir eru yndislegir en meingallaðir, svona bara eins og fólk er flest. Innblástur þeirra er enda fólkið í kringum okkur, kómískir og fyndnir karakterar, sem enginn skortur er á í fjölskyldum og vinahópum flestra.“

Helga Árnadóttir og Signý Kolbeinsdóttir hjá Tulipop.
Helga Árnadóttir og Signý Kolbeinsdóttir hjá Tulipop. Ljósmynd/Eva Björk Ægisdóttir
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert