RÚV valdi milli slæmra valkosta

Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri.
Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri. mbl.is/Þórður

Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri, segir RÚV hafa staðið frammi fyrir erfiðum valkostum þegar ákveðið var að ráðum lögfræðinga félagsins að greiða Guðmundi Spartakusi Ómarssyni 2,5 milljónir í málskostnað og bætur út af fréttaflutningi RÚV vegna tiltekinna ummæla í fréttum af málum hans í upphafi árs 2016.

Fram hefur komið að samkvæmt samkomulaginu viðurkennir RÚV ekki sekt í málinu. Fréttirnar vörðuðu meinta aðild Guðmundar að fíkniefnamáli. Spurður hvers vegna RÚV samdi við Guðmund rifjar útvarpsstjóri upp sögu málsins.

„Á sínum tíma höfðu verið fluttar nokkrar fréttir á árinu 2016 af þessu máli í RÚV og reyndar öðrum miðlum. Þær byggðust að miklu leyti á umfjöllun erlendra fjölmiðla en einnig erlendum heimildarmanni. Síðar stefnir Guðmundur RÚV og fleirum vegna þessa. Megnið af því sem fram kom í fréttum um málið byggðist á heimildum sem höfðu birst opinberlega en þegar til átti að taka kemur í ljós að heimildarmaður RÚV er ekki tilbúinn til að staðfesta ummæli sín með formlegum hætti, sem sneru að nokkrum tilteknum atriðum í þessum fréttum.“

Magnús Geir rifjar upp að á sama tíma hafi eldra mál frá árinu 2012 farið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu sem hnykkti á sönnunarbyrði og dómaframkvæmd. Þar komu Svavar Halldórsson, fréttamaður RÚV, og Jón Ásgeir Jóhannesson athafnamaður við sögu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert