Mótmæla fjölbýlishúsum á Álftanesi

Svona gæti miðsvæðið litið út verði fyrirliggjandi hugmyndir að veruleika. …
Svona gæti miðsvæðið litið út verði fyrirliggjandi hugmyndir að veruleika. Bessastaðir eru til hægri. Samsett mynd/Eyþór Kristleifsson

Hafin er undirskriftasöfnun á Álftanesi þar sem mótmælt er breytingu á aðalskipulagi sem gerir ráð fyrir níu fjölbýlishúsum á svonefndu Miðsvæði.

Íbúar telja að ef þarna verði reistar þriggja hæða byggingar sé það stílbrot við annað á svæðinu og vilja þeir því að bæjaryfirvöld í Garðabæ falli frá þessum áformum.

Ásýnd þessara húsa hæfi heldur ekki í návígi við forsetasetrið á Bessastöðum, þangað sem tignir gestir komi gjarnan í heimsóknir, að því er fram kemur í umfjöllun um mótmæli þessi í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert