Innkalla Ford Ranger bifreiðar

Ford Ranger.
Ford Ranger.

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Rapex-kerfinu um innköllun á Ford Ranger bifreiðum sem framleiddar voru á tímabilinu 07/10/2016 til 17/11/2016. Er ástæða innköllunar sögð vera sú að í sumum bílanna sé möguleiki á að gallaðir loftpúðanemar hafi verið settir upp. „Sé sú raunin er hætta á að loftpúðar blásist ekki upp við árekstur,“ að því er segir í frétt Neytendastofu.  Hefur Ford því ákveðið að innkalla bifreiðarnar og setja nýja hliðarlofpúða.

Umboðsaðili Ford bifreiða á Íslandi segir ekki hafa verið flutta inn bíla á þeirra vegum, sem falla undir þessa innköllun.  Samkvæmt upplýsingum Samgöngustofu eru engu að síður fjórir slíkir bílar í umferð á Íslandi og eru eigendur þeirra hvattir til að leita til Brimborgar varðandi þessa innköllun.

Hvetur Neytendastofa bílaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert