Íslenskir kóngar verðlaunaðir í Frakklandi

Einar Már Guðmundsson hlýtur frönsku Prix Littérature-monde bókmenntaverðlaunin fyrir bók …
Einar Már Guðmundsson hlýtur frönsku Prix Littérature-monde bókmenntaverðlaunin fyrir bók sína Íslenskir kóngar. Ljósmynd/Forlagið

Einar Már Guðmundsson hlýtur frönsku Prix Littérature-monde bókmenntaverðlaunin fyrir bók sína Íslenskir kóngar, sem kom út á frönsku fyrr í ár undir heitinu Les Rois d'Islandes.

Greint var frá verðlaunaafhendingunni í hádeginu í gær og hélt Einar Már til Frakklands í morgun til að taka á móti verðlaununum samkvæmt upplýsingum frá Forlaginu, en verðlaunin eru veitt af L'Agence française de Développement og hátíðinni Étonnants Voyageurs.

Prix Littérature-monde verðlaunin eru veitt tveimur skáldsögum sem gefnar hafa verið út í Frakklandi á síðustu tólf mánuðum. Önnur bókin er eftir frönskumælandi höfund, en hin er þýðing.

Verða verðlaunin afhent á Café Littéraire Festival Saint-Malo Surprise Travelers sunnudaginn 20. maí.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert