Verðlaunuð fyrir vitundarvakningu á stöðu erlendra kvenna

Samtökin hafa staðið að vitundarvakningu á stöðu kvenna af erlendum …
Samtökin hafa staðið að vitundarvakningu á stöðu kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. Sögur þeirra í tengslum við #Metoo hafa vakið fólk til umhugsunar um sérstaklega viðkvæma stöðu þessa hóps innan íslensks samfélags. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Samtök kvenna af erlendum uppruna hlutu í dag Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar. Mannréttindaverðlaunin eru veitt þeim einstaklingum, félagasamtökum eða stofnunum sem hafa á eftirtektarverðan hátt staðið vörð um mannréttindi tiltekinna hópa. Verðlaunin voru veitt á mannréttindadegi borgarinnar, en markmiðið með mannréttindadeginum er að vekja athygli á þeim málum sem varða mannréttindi borgarbúa og á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar.

Það var Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sem afhenti samtökum verðlaunin, en þau hafa staðið að vitundarvakningu á stöðu kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. „Sögur þeirra í tengslum við #Metoo hafa vakið fólk til umhugsunar um sérstaklega viðkvæma stöðu þessa hóps innan íslensks samfélags. Þær hafa sýnt hugrekki og styrk, verið fyrirmyndir og öflugt tengslanet þeirra hefur orðið afl til þjóðfélagsbreytinga,“ að því er segir í fréttatilkynningu. 

Sagði borgarstjóri við afhendingu verðlaunanna að samtökin hafi skapað mikilvægan vettvang og samstöðuafl fyrir konur alls staðar að úr heiminum, sem búsettar eru á Íslandi, til þess að láta raddir sínar heyrast.

Hvatningarverðlaun fyrir að tryggja aðgengi að sundstöðum

Þá afhenti Elín Oddný Sigurðardóttir, formaður mannréttindaráðs afhenti Hvatningarverðlaun mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar, en þau fékk að þessu sinni Logi Sigurfinnsson forstöðumaður Sundhallarinnar og Laugardalslaugar.

Verðlaunin fékk Logi fyrir að hafa með frumkvæði og dugnaði  tryggt jafnt aðgengi fyrir alla að sundstöðunum, en Hvatningarverðlaunin eru veitt fyrir þróunar- og nýbreytnistarf einstaklinga, borgarstofnanna og fyrirtækja á sviði mannréttindamála.

Einnig fékk verkefnið Móttaka nýrra íbúa verðlaunin fyrir að taka heildstætt á móti fjölskyldum með annað móðurmál en íslensku og veita fræðslu um hvernig þjónusta borgarinnar virkar innan hverfis. Samstarfsaðilar eru Árbæjarskóli, Ársel og Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert