Áminning Lögmannafélagsins stendur

Lögmannafélag Íslands áminnti Jón Steinar vegna tölvupóstsendinga til dómstjóra.
Lögmannafélag Íslands áminnti Jón Steinar vegna tölvupóstsendinga til dómstjóra. mbl.is/Hari

Lögmannafélag Íslands hefur verið sýknað af kröfu Jóns Steinars Gunnlaugssonar um að áminning félagsins á hendur honum verði felld úr gildi. Þetta kom fram við dómsuppsögu í málinu nú fyrir skemmstu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Málskostnaður vegna málsins fellur niður.

Jón Steinar kærði Lögmannafélagið vegna ákvörðunar þess um að áminna hann fyrir tölvupóstsendingar til dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur í desember 2016. Vildi Jón Steinar fá þá áminningu fellda úr gildi.

Áminnt var vegna tölvupósta sem Jón Steinar sendi Ingimundi Einarssyni, þáverandi dómstjóra í Héraðsdómi Reykjavíkur, í desember árið 2016. Í téðum tölvupóstum lýsti Jón Steinar yfir óánægju sinni með afgreiðslu Ingimundar á beiðnum hans um flýtimeðferð í tilteknu dómsmáli.

Ingimundi blöskraði orðbragðið í skeytunum og sendi þau áfram á Lögmannafélagið, sem tók málið fyrir og ákvað að vísa því til úrskurðarnefndar lögmanna, sem fer með mál sem varða brot lögmanna á siðareglum.

Úrskurðarnefndin komst í fyrrasumar að þeirri niðurstöðu Jón Steinar hefði brotið gegn siðareglunum með alvarlegum hætti og áminnti hann.

Þá áminningu felldi Jón Steinar sig ekki við, en nú hefur Lögmannafélagið sem áður segir verið sýknað í málinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert