Forstjóri Landsvirkjunar opnaði Gaum

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, opnaði nýjan vef Sjálfbærniverkefnisins á Norðausturlandi …
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, opnaði nýjan vef Sjálfbærniverkefnisins á Norðausturlandi í dag: www.gaumur.is mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, opnaði nýjan vef Sjálfbærniverkefnisins á Norðausturlandi, á Fosshótel á Húsavík í dag. Vefurinn ber heitið Gaumur og á honum er fylgst með þróun mála á sviði samfélags, umhverfis og efnahags á svæðinu frá Vaðlaheiði í vestri til og með Tjörneshreppi í austri.

„Á vefnum geta notendur nálgast upplýsingar um þróun samfélags, umhverfis og efnahags á framangreindu svæði, sem talið er að muni verða fyrir hvað mestum áhrifum af uppbyggingu og starfsemi Þeistareykjavirkjunar, iðnaði á Bakka og auknum umsvifum í ferðaþjónustu,“ segir í tilkynningu.

Einnig er að finna á vefnum ýmsan fróðleik um sjálfbæra þróun. Meðal upplýsinga sem eru aðgengilegar á vefnum má nefna mannfjölda svæðisins, tekjur íbúa, samgöngur, lífríki, fasteignamarkað og hag einstaklinga, fyrirtækja og sveitarfélaga.

Í tilkynningu segir að aðstandendur verkefnisins binda vonir við að þau gögn sem aflað verður og birt á vegum verkefnisins muni nýtast meðal annars við rannsóknir og kennslu á öllum skólastigum, stefnumótun opinberra aðila og atvinnuuppbyggingu á svæðinu.

Aðstandendur verkefnisins eru Landsnet, Landsvirkjun, PCC, fulltrúar ferðaþjónustuaðila, Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri ásamt sveitarfélögunum Norðurþingi, Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit. Þekkingarnet Þingeyinga fer með verkefnisstjórn. Vefurinn verður í stöðugri þróun og nýjar upplýsingar verða birtar með reglubundnum hætti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert