Dr. Páll Melsted, prófessor við iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands hlaut Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs fyrir árið 2018 sem voru afhent í dag á Rannsóknarþingi.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti Páli verðlaunin á þinginu þar sem fjallað var um markáætlun um öndvegissetur og klasa 2009-2015 og tók forsætisráðherra þátt í pallborðsumræðum um forgangsröðun í vísindum.
Hvatningarverðlaunin eru veitt þeim vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað framúr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi. Verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 1987, í fyrsta sinn á 50 ára afmæli atvinnudeildar Háskóla Íslands.
Páll Melsted er fæddur árið 1980. Hann lauk BS-gráðu í stærðfræði með ágætiseinkunn frá Háskóla Íslands árið 2003 og doktorsprófi frá stærðfræðideild Carnegie Mellon háskóla í Pittsburgh árið 2009 á sviði reiknirita, fléttufræði og bestunar. Eftir doktorsnám starfaði hann í tvö ár sem nýdoktor við mannerfðafræðideild Chicago-háskóla. Auk þess að sinna prófessorsstöðu við HÍ starfar Páll nú einnig sem vísindamaður hjá Íslenskri erfðagreiningu.
Vísindalegt framlag Páls hefur aðallega legið á sviði lífupplýsingafræði. Hann hefur þróað stærðfræðilegar aðferðir sem nýtast til að greina það gríðarlega magn gagna sem aflað hefur verið með nýjum greiningaraðferðum í erfðafræði á undanförnum árum. „Sérstaklega hefur Páll beitt sér fyrir því að þróa aðferðir sem gera rannsakendum kleift að framkvæma flókna útreikninga með venjulegum tölvum í stað þess að treysta á aðgang að ofurtölvum,“ segir í tilkynningu frá Rannís.