Gera þurfi meiri kröfur og bæta verklag

Fram kemur meðal annars í nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar um kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík að beiðni Alþingis að bæta þurfi verklag og auka kröfur við gerð ívilnunarsamninga um nýfjárfestingar, mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og útgáfu starfsleyfa. Sjö ábendingum er í skýrslunni beint til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Skipulagsstofnunar, Umhverfisstofnunar og Vinnueftirlits ríkisins.

„Mikilvægt er að stofnanir ríkisins sem koma að útgáfu starfsleyfa og gerð ívilnunarsamninga geti sannreynt getu þeirra sem sækj­ast eftir því að starfrækja meng­andi iðn­að til að uppfylla skilyrði slíks rekstrar og sanngildi þeirra upplýsinga sem þeir leggja fram. Kísilverksmiðja Sameinaðs Sílikons var ekki fullbúin þegar framleiðsla hófst og starfaði aldrei í samræmi við mat á umhverfisáhrifum, starfsleyfi og markmið samnings um ívilnanir. Ríkisendurskoðun telur brýnt að umhverfis- og auðlindaráðuneyti kanni, í sam­starfi við Umhverfisstofnun og önnur stjórn­völd, hvort herða þurfi eða skýra kröf­ur við útgáfu starfsleyfa vegna starf­semi sem getur haft mengun í för með sér,“ segir í fréttatilkynningu.

Fram kemur að ekki hafi verið gert ráð fyrir lyktarmengun við mat á umhverfisáhrifum kísilverksmiðjunnar og sé sú mengun sem fram hafi komið ekki að fullu skýrð fyrir utan að ljósbogaofn verksmiðjunnar hafi verið óstöðugur. „Ríkisendurskoðun telur mikilvægt að Skipulagsstofnun kanni hvort og þá hvernig taka megi á hugsanlegum frávikum í rekstri við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda, sérstaklega þegar nálægð við íbúðabyggð er mikil. Þá telur Ríkisendurskoðun að Skipulagstofnun hefði átt að taka fram í áliti sínu að ekki var brugðist við athugasemdum um skort á reykháfum. Ríkisendurskoðun hvetur til þess að kannað verði hvort gera eigi strangari kröfur við mat á umhverfisáhrifum.“

Ennfremur segir að auk lyktarmengunar hafi sjónræn áhrif verið önnur og meiri en gert hefði verið ráð fyrir. Sömuleiðis hafi bygging kísilverksmiðjunnar ekki verið í samræmi við gildandi svæðisskipulag. Telur Ríkisendurskoðun þetta gagnrýnivert og bendir á að ástæða sé til þess að kanna hvort Skipulagsstofnun þurfi á skýrari og beinskeyttari úrræðum að halda þegar framkvæmdir séu ekki samræmi við mat á umhverfisáhrifum.

„Ríkisendurskoðun telur að vanda þurfi betur til greininga sem ákvarðanir um veitingu ívilnana byggja á. Við gerð ívilnunarsamnings við Sameinað Sílikon var alfarið byggt á framlögðum gögnum og upplýsingum umsækjenda. Við afgreiðslu á umsókn um ívilnun lágu ekki fyrir skýrar upplýsingar um eignarhald og stjórnendur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert