15 milljóna pottur gekk ekki út

Lottó.
Lottó.

Enginn var með allur tölurnar réttar í Lottóinu í kvöld en rúmar 15 milljónir króna voru í pottinum.

Einn hlaut bónusvinninginn og fær hann í sinn hlut tæpar 345 þúsund krónur.

Enginn var með fimm jókertölur réttar í réttri röð en þrír voru með fjórar réttar í réttri röð. Þeir fá hver um sig 100 þúsund krónur í vasann.

Vinningsmiðarnir þrír voru keyptir í Baulu í Borgarfirði, Hagkaupum á Akureyri og í áskrift.

Lottótölur kvöldsins: 4-22-31-39-40

Bónustalan: 38

Jókertölurnar: 0-3-1-9-0

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert