Reykræsting í Ljósheimum

mbl.is/Hjörtur

Eldur kom upp í tveimur til þremur ruslatunnum sem stóðu í skoti við átta hæða fjölbýlishús í Ljósheimum í Reykjavík.

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað á vettvang klukkan 22.15.

Að sögn slökkviliðsins myndaðist töluverður reykur, sem fór inn í stigahús fjölbýlishússins og þurfti því að reykræsta eftir að eldurinn hafði verið slökktur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert