Segir laun Ármanns óhófleg

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir ábyrgð stöðugleikans á vinnumarkaði eigi ekki …
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir ábyrgð stöðugleikans á vinnumarkaði eigi ekki að leggja á herðar lægst launaða fólksins. mbl.is/Eggert

„Þetta er óhóf,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, um launakjör Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra Kópavogs, í Víglínunni á Stöð 2 í dag. Hún sagði það ábyrgðarhluta hjá stjórnendum hins opinbera að tryggja að ábyrgð stöðugleikans á vinnumarkaði yrði ekki lagt á herðar lægst launaða fólksins.

Ármann hefur sætt gagnrýni síðustu daga vegna þess að laun hans hækkuðu um 32,7% á árunum 2016 til 2017. Geir Þorsteinsson, oddviti Miðflokksins, gerði í aðsendri grein í Morgunblaðinu, 14. maí síðastliðinn, athugasemdir við launakostnað vegna kjörinna fulltrúa í Kópavogi.

Grein Geirs er aðgengileg áskrifendum hér.

Bæjarstjórn samþykkti einróma í byrjun síðasta árs að hætta að miða laun bæjarfulltrúa við hlutfall þingfarakaupa og í stað þess miða við þróun launavísitölu. Þannig hækkuðu laun kjörinna fulltrúa í Kópavogi 26% 1. mars 2017 í stað 44,3% eins og ella hefði verið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert