Sex æskuvinkonur sem allar hafa rætur á Blönduósi hittust uppáklæddar á heimili einnar í Reykjavík í morgun og fylgdust með konunglega brúðkaupinu í Windsor. Vinkvennahópurinn hefur verið samheldinn um langt skeið og á undanförnum árum hafa þær nýtt konungleg brúðkaup til þess að gera skemmtilega hluti saman.
„Hann var ótrúlega fallegur kjóllinn og þetta var flott athöfn. Tárin láku hér bara alveg,“ segir Þórunn Sævarsdóttir, ein vinkvennanna í samtali við mbl.is. Hún segir að þær hafi fylgst mikið með Harry Bretaprins er Meghan Markle gekk upp að altarinu í kapellu heilags Georgs í Windsor-kastala í morgun.
„Við minnumst þess enn þegar Friðrik [Danakrónprins] grét þegar Mary gekk inn kirkjugólfið, svo við horfðum mikið á Harry. Hann grét ekki, en það var alveg hægt að sjá tilfinningarnar á honum samt,“ segir Þórunn, en vinkonurnar sex gerðu sér sérstaka ferð til Kaupmannahafnar til að vera viðstaddar brúðkaup þeirra Friðriks og Mary Elizabeth Donaldson árið 2004.
„Þetta byrjaði kannski svolítið sem svona gaman, þegar Friðrik og Mary giftu sig í Danmörku þá fannst okkur tilvalið að fara í okkar fyrstu utanlandsferð saman, vinkonurnar. Við byrjuðum bara á því að undirbúa þá ferð mjög vel og vorum allan veturinn að velta því fyrir okkur hvað við ættum að gefa þeim í brúðargjöf og hvernig við ættum að hafa þetta ferðalag,“ segir Þórunn, en vinkonurnar prjónuðu ullarsokka handa Friðrik og Mary, blátt par handa prinsinum og rautt handa eiginkonu hans.
Löngu seinna fengu vinkonurnar síðan þakkarkort frá brúðhjónunum dönsku, sem var ekki bara staðlað heldur fylgdu því einlægar þakkarkveðjur fyrir ullarsokkana. „Við fengum kannski aðeins meira til baka en við hefðum átt von á, það var gaman að því en fyrst og fremst var þetta bara skemmtileg ferð fyrir okkur vinkonurnar og skemmtilegar minningar sem verða til þarna,“ segir Þórunn.
Vinkonurnar voru aftur svo aftur mættar á vettvang konunglegs brúðkaups í Skandinavíu er Carl Philip Svíaprins gekk að eiga fyrrverandi raunveruleikastjörnuna Sofiu Hellqvist í konunglegu kapellunni í Stokkhólmi í júní árið 2015. „Það var ekki lagt eins mikið í það og við færðum þeim ekki gjöf en við fórum saman og fylgdumst með, sáum þau úti á götu og svona og það var mjög skemmtileg ferð,“ segir Þórunn.
Í dag var svo sem áður segir haldin brúðkaupsveisla hjá vinkonunum og þar komu þær saman, Þórunn, Þóra Valsdóttir, Steinþóra Sigurðardóttir, Hrönn Vilhelmsdóttir, Ragnhildur Traustadóttir og gestgjafinn Margrét Ágústa Sigtryggsdóttir, sem hafa allar verið vinkonur frá því að þær voru 12-13 ára gamlar.
„Þetta var yndislegur morgunn, eins og alltaf þegar góður hópur hittist,“ segir Þórunn, en mikið var lagt upp úr veitingunum og meðal annars voru enskar skonsur á boðstólum, auk auðvitað glæsilegrar brúðkaupstertu og freyðivíns, sem fylgir fögnuði sem þessum.