Umferðarlys á Suðurlandsvegi

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Umferðarslys varð á Suðurlandsvegi skammt frá vegamótunum að Vesturlandsvegi laust eftir klukkan 13 í dag og mættu sjúkrabílar og lögregla á vettvang.

Einn einstaklingur var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar í kjölfar slyssins, en ekki er vitað hvort meiðsli hans eru alvarleg, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

Umferðartafir voru um veginn og samkvæmt upplýsingum vegfaranda var honum lokað, að minnsta kosti í aðra áttina, á meðan viðbragðsaðilar athöfnuðu sig.

Uppfært: Búið er að opna fyrir umferð um Suðurlandsveg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert