Bílvelta á Þröskuldum

Veginum um Þröskulda var lokað vegna bílveltu.
Veginum um Þröskulda var lokað vegna bílveltu. Kort/Map.is

Veginum um Þröskulda á Vestfjörðum var lokað á sjötta tímanum vegna bílveltu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vestfjörðum hefur verið opnað fyrir umferð um veginn á ný. Bílveltan átti sér stað í Arnkötludal.

Lögregla og sjúkralið frá Hólmavík mættu á vettvang slyssins. Tveir menn voru í bílnum og voru meiðsli þeirra óveruleg. Farþegarnir voru fluttir til Hólmavíkur til aðhlynningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert