Áfram vinda- og vætusamt veður

Það verður áfram vætusamt á landinu næstu daga.
Það verður áfram vætusamt á landinu næstu daga. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Engin veðurviðvörun er í gildi fyrir landið næsta sólarhringinn en það er samt sem áður vinda- og vætusamt veður í kortunum. 

Búast má við sunnanátt, 10-20 metrum á sekúndu, og rigningu eða skúrum í kvöld og nótt, hvassast verður á Norður- og Austurlandi.

Á morgun verður suðvestanátt á landinu, 8-15 metrar á sekúndu og skúrir, en léttskýjað á norðaustanverðu landinu. Hægari og úrkomulítið síðdegis.

Hiti verður á bilinu 6 til 16 stig, hlýjast norðaustan til.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert