Barnasáttmáli SÞ innleiddur í Kópavogi

Núverandi bæjarstjórn Kópavogs á síðasta fundi kjörtímabilsins í dag. Frá …
Núverandi bæjarstjórn Kópavogs á síðasta fundi kjörtímabilsins í dag. Frá vinstri: Ármann Kr. Ólafsson, Theodóra S. Þorsteinsdóttir, Hreiðar Oddsson, Hjördís Ýr Johnson, Margrét Friðriksdóttir Karen Elísabet Halldórsdóttir, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Pétur Hrafn Sigurðsson, Birkir Jón Jónsson, Ása Richardsdóttir og Guðmundur Gísli Geirdal. Ljósmynd/Kópavogsbær

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti í dag tillögu um innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í Kópavogi. Allir ellefu bæjarfulltrúar voru flutningsmenn tillögunnar sem samþykkt var einum rómi.

Í tilkynningu frá Kópavogsbæ kemur fram að innleiðingin verði unnin í samstarfi við Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Unicef. „Ekkert sveitarfélag á Íslandi hefur innleitt sáttmálann þó að þau vinni með margvíslegum hætti í anda hans við að tryggja réttindi barna,“ segir í tilkynningu. 

Kópavogsbær verður annað sveitarfélagið á Íslandi sem vinna mun með Unicef á Íslandi að innleiðingu sáttmálans en Unicef er nú þegar í samstarfi við Akureyrarbæ að innleiðingu barnasáttmálans.

Fundur bæjarstjórnar Kópavogs í dag var sá 79. núverandi bæjarstjórnar og sá síðasti á kjörtímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert