Sömdu um stofnframlag vegna fjögurra íbúða

Á myndinni eru frá vinstri: Aðalsteinn Sigfússon, sviðsstjóri velferðarsviðs, Björn …
Á myndinni eru frá vinstri: Aðalsteinn Sigfússon, sviðsstjóri velferðarsviðs, Björn Arnar Magnússon, framkvæmdastjóri Brynju – Hússjóðs ÖBÍ, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri og Theodóra S. Þorsteinsdóttir, formaður bæjarráðs. Ljósmynd/Aðsend

Undirritað var samkomulag um stofnframlag vegna kaupa á fjórum íbúðum í Kópavogi í dag. Kópavogsbær mun sjá um úthlutanir íbúðanna af biðlista eftir leiguíbúðum hjá Brynju – Hússjóði ÖBÍ og Kópavogsbæ.

Í tilkynningu frá Kópavogsbæ segir að báðir aðilar hafi lýst yfir áhuga á frekara samstarfi. Með íbúðunum eru félagsleg búsetuúrræði alls 471 í bænum, 433 íbúðir en önnur úrræði 38.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert