Atvinnuleysisbætur hækkuðu um 19%

mbl.is/Eggert

Atvinnuleysisbætur hækkuðu 1. maí síðastliðinn um tæp 19%. Hækkunin tók gildi með reglugerð sem félags- og jafnréttismálaráðherra staðfesti 23. apríl síðastliðinn og tók gildi 1. maí og er í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í þágu félagslegs stöðugleika frá því í febrúar sem gerð var í tengslum við mat á kjarasamningnum á almennum vinnumarkaði.

Í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu kemur fram að hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta hefur hækkað úr 358.516 krónum á mánuði í 425.647 krónur, miðað við óskerta atvinnuleysistryggingu.

Jafnframt hækkuðu óskertar grunnatvinnuleysisbætur úr 227.417 krónur á mánuði í 270.000 krónur á mánuði. Hækkunin nemur 18,7%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert