Leita ferðasjóðs fjölskyldunnar

Ferðasjóður fjölskyldunnar týndist í gærmorgun.
Ferðasjóður fjölskyldunnar týndist í gærmorgun. mbl.is/Kristinn

Ung og einstæð tveggja barna móðir, búsett í Hafnarfirði, varð fyrir því óhappi að týna umslagi sem innihélt ferðasjóð fjölskyldunnar á göngu sinni frá Holtinu í Norðurbæ í gærmorgun.

Mæðgurnar höfðu safnað í sjóð fyrir utanlandsferð og komið fyrir í umslagi merkt Íslandsbanka. Móðirin var á leið í bankann að leggja inn peningana þegar umslagið týndist.

Í umslaginu eru ásamt sjóðnum bleikir miðar með heiti áfangastaða sem dæturnar voru búnar að óska sér, Tenerife og Spánn.

Eftir mikla en árangurslausa leit ákvað móðirin að biðla til íbúa Hafnarfjarðar og biðja þá um að hafa augun opin fyrir umslaginu.

Hægt er að koma ábendingum áleiðis með því að hafa samband við ritstjorn@fjardarposturinn.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert