Arnfríður ekki vanhæf

Landsréttur.
Landsréttur. mbl.is/Hjörtur

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Landsréttar í máli ákæruvaldsins gegn Guðmundi Andra Ástráðssyni. Í málinu var haldið fram vanhæfi Arnfríðar Einarsdóttur, dómara við Landsrétt og var hún þar ekki talin vanhæf til að fjalla um málið. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson var lögmaður Guðmundar Andra.

Málið varðaði að öðru leyti marg­vís­leg um­ferðarlaga­brot ákærða og brot á reynslu­lausn.

Arn­fríður er ein af fjór­um dómur­um Lands­rétt­ar sem voru ekki á lista sér­stakr­ar hæfn­is­nefnd­ar um skipunina, en dóms­málaráðherra lagði þó til að yrðu skipaðir. Vil­hjálm­ur gerði fyrst kröfu um að Arn­fríður myndi víkja í byrj­un fe­brú­ar og úrskurðaði Landsréttur að hún væri ekki vanhæf.

Upphaf málsins má rekja til skipunar Sigríðar Andersen, dómsmálaráðherra, á dómurum við Landsrétt á síðasta ári.

Efasemdir um sjálfstæði dómsvaldsins

Um skipun dómara við Landsrétt upphófust pólitískar deilur í vetur og var Sigríður m.a. boðuð á opinn fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í janúar. Í mars var svo lögð fram vantrauststillaga á Alþingi gegn Sigríði og var tillagan felld með 33 atkvæðum.

Vilhjálmur sagði að skip­an Arn­fríðar sem dómari við Landsrétt leiddi af sér miklar efasemdir um sjálfstæði dómstólsins, en Hæstirétt­ur hafði áður kom­ist að þeirri niður­stöðu að ís­lenska ríkið ætti að greiða tveim­ur um­sækj­end­um um embætti dóm­ara við Lands­rétt miska­bæt­ur.

Í mars vísaði Hæstiréttur frá kæru Vilhjálms vegna meints vanhæfis Arnfríðar á þeim grundvelli að kæruheimild væri ekki til staðar með hliðsjón af ágreiningsefninu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert