IKEA innkallar SLADDA-reiðhjólið vegna ófullnægjandi öryggis beltadrifsins, sem kemur í stað hefðbundinnar keðju á hjólinu.
Beltadrifið getur slitnað fyrirvaralaust og þannig leitt til falls. IKEA innkallar því SLADDA-reiðhjólið í varúðarskyni og hvetur viðskiptavini til að hætta notkun þess. IKEA hafa borist ellefu tilkynningar um óhöpp, engin þeirra á Íslandi, segir í tilkynningu.
Viðskiptavinir sem eiga SLADDA-reiðhjól eru beðnir að hætta notkun þess og skila því í IKEA-verslunina og fá að fullu endurgreitt. Fylgihlutir sem sérhannaðir eru til notkunar með SLADDA verða einnig endurgreiddir.