Samfelld úrkoma

Veðurstofa Íslands.

Fremur hæg breytileg vindátt verður á landinu í dag. Samfelld úrkoma suðaustan- og austanlands og einnig um tíma fyrir norðan. Vestan til á landinu má búast við skúraleiðingum. Heldur vaxandi suðvestan- og vestanátt þegar líður á daginn, samkvæmt Veðurstofu Íslands.

„Dæmigerð suðvestanátt með skúrum á morgun, en þó má búast við sólarglennum á milli skúraskýjanna. Norðaustan til léttir smám saman til og hlýnar aftur. Næsta lægð er þó ekki langt undan með vaxandi suðaustanátt og rigningu um landið vestanvert annað kvöld. Áframhaldandi suðlægar áttir um helgina, hvasst á köflum og vætusamt sunnan- og vestanlands, en hlýtt og að mestu þurrt um landið norðaustanvert,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Fremur hæg breytileg átt og rigning sunnan- og austanlands og síðar einnig norðanlands, en annars úrkomulítið. Snýst í vestan- og suðvestan 5-10 þegar kemur fram á daginn með skúrum, fyrst vestan til, en heldur hvassara suðaustan- og austanlands í kvöld. Suðvestan 8-15 seint í nótt og á morgun og skúrir um landið sunnan- og vestanvert, en yfirleitt þurrt og bjart um landið norðaustanvert. Gengur í suðaustan 10-18 með rigningu sunnan- og vestanlands annað kvöld. Hiti yfirleitt 5 til 13 stig.

Á föstudag:

Suðvestan 5-13 og bjartviðri NA-lands, annars skýjað með köflum og smáskúrir. Hiti 5 til 13 stig, hlýjast NA-til. Vaxandi suðaustanátt með rigningu á S- og V-landi um kvöldið. 

Á laugardag:
Sunnan 10-18 m/s og talsverð rigning á sunnan og vestanverðu landinu og hiti 8 til 13 stig, en hægari suðaustlæg átt norðaustanlands, úrkomulítið og hiti 12 til 19 stig. Dregur úr vindi og úrkomu um kvöldið. 

Á sunnudag:
Sunnan og suðaustan 5-13 m/s, hvassast með suðvesturströndinni. Skýjað og víða rigning, einkum sunnan- og vestanlands, en úrkomulítið austanlands. Hiti 8 til 17 stig hlýjast norðaustanlands. 

Á mánudag:
Fremur hæg breytileg átt, skýjað með köflum og fremur hlýtt, en fer að rigna vestan til um kvöldið. 

Á þriðjudag:
Suðaustlæg átt og rigning með köflum um landið vestanvert, en yfirleitt þurrt og bjart austan til. Áfram fremur hlýtt í veðri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert