Stærsta skemmtiferðaskip á Íslandi

MSC Meraviglia kemur í sína fyrstu ferð til Íslands á …
MSC Meraviglia kemur í sína fyrstu ferð til Íslands á laugardag. Skipið er stærsta skip sinnar tegundar sem kemur til Íslands. Ljósmynd/Aðsend

Stærsta skemmtiferðaskip sem til Íslands kemur í sumar er væntanlegt til Reykjavíkur á laugardag. Skipið, sem ber nafnið MSC Meraviglia, verður stærsta skemmtiferðaskip sem hingað hefur komið. 

Meraviglia hefur sólarhringsviðdvöl við Skarfabakka og siglir á brott á sunnudag. 4.526 farþegar koma með skipinu og 1.561 er í áhöfn skipsins, segir í tilkynningu frá Gáru, dótturfélagi TVG-Zimsen sem þjónustar skipið á meðan það er við höfn á Íslandi.

Í tilkynningunni segir að skipið sé hið glæsilegasta, 171.598 brúttótonn að stærð, 315 metrar að lengd og 43 metrar að breidd. Félagið MSC Cruises er eigandi skipsins og er fyrsta fyrirtækið í skemmtiferðaskipaiðnaði sem hlýtur verðlaunin „7 perlur“, en verðlaunin eru veitt þeim fyrirtækjum sem huga vel að loftslags-, sjávar- og úrgangsmálum.

146.700 farþegar eru væntanlegir hingað til lands með skemmtiferðaskipum á þessu ári, fleiri en nokkru sinni fyrr. Á þessu ári verða skipin 70 talsins og hafa 165 sinnum viðkomu í Reykjavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert