Sýnir spá gærdagsins

Kortaspáin er fyrir daginn í dag, en textaspáin er frá …
Kortaspáin er fyrir daginn í dag, en textaspáin er frá því í gær. Skjáskot/Veðurstofa Íslands

Bilun í gagnagrunni Veðurstofu Íslands veldur því að spá gærdagsins birtist enn sem nýjasta spáin á vefnum vedur.is.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni er það þó eingöngu textaspáin sem er óuppfærð. Rétt kortaspá sem birtist á vefnum í morgun er í fullu gildi.

Verið er að vinna að lagfæringu og er gert ráð fyrir að vefurinn verði kominn í rétt horf innan skamms.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert