Ánægð með fylgisaukningu

Dóra Björt greiddi atkvæði í Árbæjarskóla í dag.
Dóra Björt greiddi atkvæði í Árbæjarskóla í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata, greiddi atkvæði í Árbæjarskóla í Reykjavík um klukkan ellefu í dag. Hún segir við mbl.is „ég er mjög spennt og líst vel á, við höfum verið að tvöfalda fylgi okkar í könnunum.“

Dóra Björt segist bæði kát og glöð og bætir við að mikilvægt sé að tryggja sterka rödd Pírata í borgarstjórn Reykjavíkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert