Hefja veiðar á hrefnu í júníbyrjun

Með hrefnu á síðunni.
Með hrefnu á síðunni. mbl.is/Árni Sæberg

Hrefnuveiðimenn hyggjast hefja hrefnuveiðar á bátnum Hrafnreyði KÓ um mánaðamótin, öðru hvoru megin við sjómannadag.

Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmdastjóri IP-útgerðar, segir líklegt að byrjað verði að leita út frá Sandgerði og síðan verði lína sem afmarkar verndarsvæði hvala og leyfilegt veiðisvæði elt norður Faxaflóa.

Hrefnuveiðimenn mótmæltu því er verndarsvæði hvala í Faxaflóa var stækkað á síðasta ári en ákvörðun ráðherra hefur ekki verið breytt. Að sögn Gunnars er ákveðið að reyna hrefnuveiðar í júnímánuði en það fari síðan eftir veiði og veðri hversu lengi verði haldið áfram, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert