Natalía NS aflahæst á strandveiðunum

Frá Bakkafirði.
Frá Bakkafirði. mbl.is/Golli

Natalía NS, sem gerð er út frá Bakkafirði, er aflahæst strandveiðibáta með 9,6 tonn í tólf róðrum.

Báturinn er einn þriggja báta sem þegar hafa náð tólf róðrum í maí, sem er hámarksfjöldi róðra. Hinir tveir eru Græðir BA og Kolga BA á vestursvæði eða A-svæði og eru þeir einnig á meðal aflahæstu báta. Fjórir dagar eru eftir af strandveiðimánuðinum.

Afli á strandveiðum stendur nú í 1.319 tonnum sem er fimmtungs minnkun frá í fyrra, segir á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda. Í upphafi vertíðar var miðað við 10.200 tonn til strandveiða og er því búið að veiða um 12,9% af heimildum. Meðaltal afla á hvern bát er hins vegar aðeins 207 kílóum minna en í fyrra og er munurinn um 6%, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert