Úrkoman mest í Bláfjöllum

Bláfjöll geta tekið í sig mikla úrkomu.
Bláfjöll geta tekið í sig mikla úrkomu. mbl.is/Árni Sæberg

Mesta úrkoman sem mælst hefur í dag og nótt var í Bláfjöllum, þar sem hún hefur mælst 83 mm það sem af er degi. Víða hefur úrkoma verið á bilinu 30-50 mm á Suður- og Vesturlandi.

„Það rigndi vel í nótt og heldur áfram að rigna á sunnanverðu landinu,“ segir Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is. Á ýmsum stöðum á Suðurlandi, m.a. undir Mýrdals- og Eyjafjallajökli hefur úrkoman mælst á bilinu 50-60 mm.

„Það bætist svo kannski annað eins við fram á kvöldið í kvöld, en styttir þó væntanlega upp,“ segir hann. „Fyrst hérna á suðvesturhorninu, þannig að þá ætti mesta vatnsveðrið að vera búið þó að það rigni eitthvað áfram á morgun.“

Ár á Suðurlandi hafa margar hækkað um allt að 50 sm vegna rigningarinnar og segir Sigþrúður Ármannsdóttir náttúruvársérfræðingur m.a. hafa hækkað sem því nemur í Hólmsá við Gunnarshólma og Hólmsá við Hrífunes. Varað hafði verið við mögulegum vatnavöxtum vegna úr­komu á Suður- og Suðvest­ur­landi.

„Síðan er núna farið er að sjatna í sumum ánna á ný, t.d. í Krossá og Múlakvísl,“ segir Sigþrúður. Ekkert varð hins vegar af hækkun í Elliðaám líkt og varað hafði verið við. Ekki hafi heldur borist neinar fregnir af skemmdum eða öðru slíku af völdum vatnavaxta.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert