Allir sjá til sólar á morgun

Hitaspá fyrir morgundaginn.
Hitaspá fyrir morgundaginn. Veðurstofa Íslands

Í dag er útlit fyrir suðaustlæga átt á bilinu 5-13 m/s. Víða um land verður rigning með köflum, einkum þó sunnan- og vestanlands, segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

„Við segjum „rigning með köflum", því tvö regnsvæði ganga yfir landið í dag og verður svolítið hlé á rigningunni á milli þeirra. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast norðaustantil á landinu.

Það er lægð suður af landi sem veldur rigningunni í dag og í nótt fer lægðarmiðjan til norðurs yfir landið og áfram verður vætusamt. Í fyrramálið snýst í skammvinna vestanátt í kjölfar lægðarinnar og úrkoman fer að minnka. 

Á morgun fer dálítill hæðarhryggur yfir landið. Það þýðir að þá lægir vindinn. Einnig styttir upp og rofar til, þannig að á einhverjum tímapunkti munu allir landsmenn sjá til sólar á morgun,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurspá fyrir næstu daga

Suðaustlæg átt 5-13 m/s. Rigning með köflum, einkum sunnan- og vestanlands. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast norðaustantil á landinu.
Vestlægari í nótt og fyrramálið og áfram væta. Lægir á morgun, styttir upp og léttir til.

Á mánudag:

Vestan 8-13 m/s um morguninn og víða rigning, en lægir og styttir upp með deginum. Breytileg átt 3-8 síðdegis, bjart með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast austanlands. 

Á þriðjudag:
Suðaustan 10-15 suðvestan- og vestanlands með rigningu og súld og hita 8 til 12 stig. Suðaustan 3-10 á Norður- og Austurlandi, léttskýjað og hiti 15 til 20 stig. 

Á miðvikudag:
Suðvestan 3-8, skýjað og smásúld eða þokuloft, hiti 7 til 12 stig. Bjartviðri norðaustantil á landinu með hita að 20 stigum. 

Á fimmtudag, föstudag og laugardag:
Útlit fyrir vestanátt. Skýjað vestanlands og sums staðar þokuloft, en bjart með köflum annars staðar. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast austast á landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert