Ráðherra fagnar samningi við ljósmæður

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. mbl.is/Hari

„Það er fagnaðarefni að hér sé komin lausn á þessari erfiðu deilu,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra um samkomulagið sem náðist á fundi fulltrúa ljósmæðra og ríkisins í dag.

Formaður Ljósmæðrafélags Íslands sagði í samtali við mbl.is að aðkoma Svandísar hafi gert gæfumuninn í að höggva á hnútinn sem hafið myndast í viðræðunum.

„Það er gott að þessi mikilvæga þjónusta er nú í höfn," bætir Svandís við. 

Ljósmæðrafélag Íslands mun í framhaldinu taka afstöðu til samningsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert