Nautgripir fagna „sumri“ í húsdýragarði

Svona var stemningin áður en nautgripunum var hleypt út. Mynd …
Svona var stemningin áður en nautgripunum var hleypt út. Mynd úr safni. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Nautgripirnir í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum voru himinlifandi í gær þegar þeim var hleypt út í vorblíðuna í fyrsta sinn á þessu „sumri“, eins og segir í færslu Fjölskyldu- og húsdýragarðsins á Facebook.

Hér að neðan má sjá hvar nautgripirnir hlaupa glaðir um grænt túnið. Þær sem voru þar fyrir, gæsirnar, virtust þó ekki alveg eins ánægðar með uppákomuna.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert