Píratar kæra aftur í Reykjavík

Píratar hafa kært sveitarstjórnarkosningar í Reykjavík öðru sinni. Dóra Björt, …
Píratar hafa kært sveitarstjórnarkosningar í Reykjavík öðru sinni. Dóra Björt, oddviti Pírata, er önnur frá vinstri. Ljósmynd/Píratar

Píratar hafa kært sveitarstjórnarkosningar í Reykjavík að öðru sinni. Þetta staðfestir starfsmaður sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.

Fyrri kæru Pírata var vísað frá af kærunefnd sem sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu skipaði þar sem ekkert í lögum heimilaði kæru fyrr en eftir kosningar.

Samkvæmt heimildum fréttastofu mbl.is er nýja kæran byggð á sama grundvelli og fyrri kæran en þó með viðbót.

Fyrri kæra Pírata snerist um úthlutun á listabókstafnum P. Píratar höfðu áður fengið úthlutað listabókstafnum Þ og töldu að þessi breyting gæti valdið ruglingi þar sem bókstafirnir eru líkir.

Fréttin verður uppfærð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert