Vilja að allir haldi með Íslandi á HM

Anna Svava og Steindi Jr.
Anna Svava og Steindi Jr. Aðsent

Grínistarnir Steindi Jr. og Anna Svava eru í aðalhlutverkum í myndböndum þar sem að fulltrúar landa sem eiga ekki fulltrúa á HM í Rússlandi eru hvött til þess að halda með Íslandi á HM og ganga til liðs við í Team Iceland. Löndin sem eru tekin fyrir eru Írland, Kanada, Bandaríkin, Skotland, Ítalía og Holland. Skilaboðin eru staðfærð fyrir hvert land og þannig er til dæmis vísað í matar- og vínmenningu Ítala, hina annáluðu kurteisi Kanadabúa og hollenskar vindmyllur. Öll myndböndin eru aðgengileg á Youtube-rás Inspired by Iceland.

Team Iceland er hluti af Inspired by Iceland markaðsherferðinni. Tilgangurinn er að fanga þá miklu athygli sem fylgir þátttöku Íslands á HM til að kynna landið og styðja við íslenskt atvinnulíf. Tólf dagar eru í að Ísland leiki sinn fyrsta leik á HM gegn Argentínu og umfjöllun erlendra miðla um Ísland eykst stöðugt eftir því sem nær dregur keppni. Fjölmiðlar víða um heim hafa sent fjölmiðlafólk til Íslands til að vinna umfjallanir um landið og margir hafa haft samband með fyrirspurnir. Stutt hefur verið sérstaklega við komur fjölmiðlamanna í tengslum við Team Iceland verkefnið fyrir miðla á borð við La Gazzetta dello Sport á Ítalíu, The Times í Bretlandi, Le Figaro í Frakklandi, The Globe and Mail í Kanada o.fl.

Markmið Team Iceland verkefnisins er að auka vitund um Ísland sem góðan stað til að heimsækja, sem upprunaland gæða í matvælum, vörum og framleiðslu og tilvalinn stað fyrir fjárfestingar og viðskipti. Um er að ræða samstarfsverkefni fyrirtækja og stjórnvalda og er það unnið í góðri samvinnu við KSÍ. Íslandsstofa sér um framkvæmd verkefnisins sem er unnið undir merkjum Inspired by Iceland.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert