Varað við mislingasmiti um borð

Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Farþeginn flaug meðal annars til Íslands frá …
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Farþeginn flaug meðal annars til Íslands frá Berlín með Icelandair og héðan til Toronto. mbl.is/Hari

Heilbrigðisyfirvöld í Toronto hafa gefið út viðvörun til flugfarþega eftir að farþegi, sem flaug frá Kænugarði til Toronto með viðkomu á Íslandi, greindist með mislinga. Af þremur flugferðum voru tvær með Icelandair. 

Þrjú tilfelli af mislingum greindust hér á landi árið 2017. Um vorið greindust mislingar í níu mánaða gömlu barni hér á landi sem dvalist hafði í Taílandi. Fjöldi einstaklinga hafði verið í misnánum samskiptum við barnið á meðan á veikindunum stóð. Stærsti hluti þessara einstaklinga var bólusettur en óbólusettum einstaklingum var boðin bólusetning sem allflestir þáðu.

Tvíburabróðir barnsins veiktist svo af mislingum hér á landi hálfum mánuði eftir að bróðirinn veiktist. Tvíburabræðurnir voru óbólusettir vegna aldurs. Þetta er í fyrsta skipti í u.þ.b. aldarfjórðung sem mislingasmit hefur orðið á Íslandi. Bræðrunum heilsaðist vel og ekki varð vart við frekara smit hér á landi sem tengdist þessum sjúklingum, sem bendir til þess að hjarðónæmið hér á landi sé viðunandi.

Íslendingur sem starfaði í Bangladess veiktist í lok október 2017 þar í landi með öndunarfæraeinkenni en jafnaði sig á nokkrum dögum. Eftir heimkomu til Íslands í nóvember 2017 bar á útbrotum í andliti, á hálsi og bringu án annarra einkenna. Hægt var að greina mislingaveiruna í sjúklingi með erfðamögnunartækni (PCR). Sjúklingur hafði sögu um fullnægjandi bólusetningu gegn mislingum og var mótefnasvarið kröftugt sem leiddi til vægrar sjúkdómsmyndar sem ekki var einkennandi fyrir mislinga. Ekki er kunnugt um að sjúklingurinn hafi smitað út frá sér hér á landi.

Mislingar eru mjög smitandi og mikilvægt að bólusetja börn gegn …
Mislingar eru mjög smitandi og mikilvægt að bólusetja börn gegn þeim. AFP

Í frétt CBC kemur fram að rannsókn standi yfir vegna mislingasmitsins sem var staðfest í síðustu viku. Hafa yfirvöld sent út viðvörun um að aðrir farþegar í viðkomandi flugferðum hafi mögulega smitast.

Farþeginn flaug fyrst með úkraínsku flugfélagi frá Kænugarði til Berlín, þaðan til Íslands og að lokum frá Íslandi til Toronto 30 maí.

  • Ukraine International Airlines flug PS423 frá Kiev til Berlín.
  • Icelandair flug FI529 frá Berlín til Íslands.
  • Icelandair flug FI603 frá Reykjavík til Toronto.

Allir þeir sem ekki hafa verið bólusettir fyrir mislingum eða hafa ekki fengið mislinga eiga á hættu að smitast, segja heilbrigðisyfirvöld í Toronto.

Mislingar geta verið hættulegir ungum börnum, þunguðum konum og fólki sem veikt ónæmiskerfi. Allir þeir sem óttast að þeir hafi smitast og eru með einkenni sem geta tengst mislingum eru beðnir um að hafa samband við lækni. 

Frétt CBC

Á vef embætti landlæknis segir um mislinga:

Mislingar eru veirusjúkdómur sem er mjög smitandi og einkennist af hita og útbrotum um allan líkamann. Hann getur verið hættulegur og jafnvel valdið dauða.

Mislingaveiran er mjög smitandi og berst milli manna með úða frá öndunarfærum (t.d. hósta og hnerra). Veiran getur lifað og valdið smiti í allt að tvær klukkustundir eftir að hún berst út í andrúmsloftið.

Einkenni sjúkdómsins
Einkenni mislinga koma fram um 10–12 dögum eftir smit og geta verið mismikil eftir einstaklingum. Þau byrja oft með flensulíkum einkennum þ.e. hita, nefrennsli, sviða í augum, hósta, bólgnum eitlum og höfuðverk. Á þriðja eða fjórða degi veikindanna koma í flestum tilfellum fram útbrot sem ná yfir allan líkamann og standa í 3–4 daga eða þar til sjúkdómurinn fer að réna.
Mislingaveiran getur verið hættuleg og jafnvel valdið dauða. Alvarlegir sjúkdómar eins og eyrna- eða lungnabólga, kviðverkir, uppköst, niðurgangur og einnig heilabólga geta verið afleiðing mislinga.
Alvarlegar heilaskemmdir af völdum mislinga geta einnig komið fram mörgum mánuðum eftir sýkinguna.

Greining
Einkenni mislinga geta verið lík ýmsum öðrum sjúkdómum, rétt er að hafa samband við lækni til að fá staðfestingu á að um mislinga sé að ræða.

Meðferð
Sýklalyf gagnast lítið gegn mislingum þó getur verið nauðsynlegt að meðhöndla sýkingar sem eru afleiðingar af sjálfum sjúkdómnum með sýklalyfjum. Önnur meðferð lítur að hvíld, vökvainntekt og næringu. Hitalækkandi lyf geta hjálpað sjúklingnum að líða betur.

Forvarnir
Bólusetning gegn mislingum gefur um 95% vörn. Þátttaka á Íslandi í bólusetningu gegn mislingum hefur verið með ágætum á undanförnum árum eða tæplega 95%. Foreldrar eru hvattir til að halda áfram góðri þátttöku í bólusetningum því aðeins á þann hátt má halda þessum alvarlega smitsjúkdómi frá landinu.

Tilkynningarskylda
Tilkynningarskyldir sjúkdómar eru þeir sjúkdómar sem náð geta mikilli útbreiðslu í samfélaginu og jafnframt ógnað almannaheill. Læknum ber að tilkynna sóttvarnalækni um einstaklinga sem veikjast af mislingum með persónuauðkennum hins smitaða en einnig berast tilkynningar til sóttvarnalæknis frá rannsóknarstofum sem staðfesta sjúkdómsgreininguna. Tilgangur tilkynningar um smitsjúkdóm er að hindra útbreiðslu smits með markvissum aðgerðum t.d. með einangrun, meðferð smitaðra og rakningu smits milli einstaklinga. Til þess að fullnægja þessum skilyrðum verða upplýsingar um líklegan smitunarstað, smitunartíma og einkenni að fylgja tilkynningum. Þannig má tengja smitaða einstaklinga með faraldsfræðilegum hætti, meta áhrif smitsins og grípa til viðbragða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert