Inga segist vongóð um þinglokasamning

Inga Sæland segir samningur um þinglok gæti legið fyrir um …
Inga Sæland segir samningur um þinglok gæti legið fyrir um kvöldmatarleiti. mbl.is/Golli

Vonir eru um að samningar um þinglok liggi fyrir um kvöldmatarleiti, segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, í samtali við mbl.is. Hún segir mikinn samstarfsanda ríkja milli stjórnarandstöðuflokkanna og segir það ánægjulegt hversu samstíga þeir eru.

Orð Ingu lýsa nokkuð öðru ástandi heldur en mbl.is sagði frá í umfjöllun sinni af Alþingi í dag. Þá virtist staðan heldur snúin þar sem því var lýst að flokkar minnihlutans væru ekki á einu máli hvað varðar þær kröfur sem flokkarnir gera til meirihlutans til þess að samningur náist.

Birgir Ármannson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir í samtali við mbl.is að ekkert nýtt hafi gerst sem segir til hver niðurstaða verður varðandi þinghald, þar sem ekkert er í hendi að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert